Ađalvalmynd

Hver ritar hér???

  • Nafn: Gígja Hjaltadóttir
  • Netfang: gibban77@hotmail.com
  • Stađur: 101 Reykjavík
  • Atvinna: Nemönd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Leikur dagsins

...

07. október 2008 klukkan 10:35
Það væri hægt að skrifa svo mikið um þá rússíbanareið sem fjármálakerfið okkar, og allir landsmenn, hafa verið í undanfarna 10 daga.  Ég ætla hins vegar að sleppa því, kemst í svo vont skap og blóðþrýstingurinn fer svo hátt að mig fer hreinlega að svima!  
...sko strax farið að örla á þessu hjá mér þegar ég hripa hér inn að ég ætli ekki að fjalla um þessi mál!
...anda inn...anda út...anda inn...
Annars er maður eitthvað hálf andlaus um þessar mundir, settist einmitt við tölvuna núna til að fara að gera verkefni, enn eitt yndislega verkefnið.  Bara aðeins að gera þetta nauðsynlega fyrst; skoða póstinn, sjá hvað er helst í fréttum, lesa strjörnuspána með innlifun og trúa hverju orði sem þar stendur (enda afar þægileg fyrir naut í dag, bara gera sem minnst!) taka einn til fimm leiki á leikjanetinu, tékka á gengisvísitölunni (nýtt hjá mér) og bregða laglega!  Búin að húrra niður um 64,8 stig!  sem er mjög gott mál
Hlæjandi
Æji, er búin að hangsa nóg, best að fara að vinna í verkefninu mínu.  
En mig bráðvantar eitthvað til að skrifa um hér inni, annars fer ég bara að hætta þessu, þetta andleysi er ekki alveg að gera sig
adíjós
G

hvađ er eiginlega máliđ??

26. september 2008 klukkan 14:57
Ég sit núna uppi á Bókhlöðu og klóra mér í hausnum.  Er búin að gera svo mikið af því að hárið er komið í traustan hnút og sár farin að myndast á höfðuleðrinu!
Ástæðan:  verkefni!
Hvað er eiginlega málið???  Á fyrstu önn í lagadeildinni eru engin verkefni, svo skiptir maður yfir í stjórnmálafræðina og  ...crash...  10 verkefni á fyrstu önninni
Hissa  Ég veit ekki um ykkur en mér finnst þetta svolítið mikill munur.  Sérstaklega þar sem ég er skíthrædd við að gera verkefni, er búin að mikla þetta alveg gasalega mikið fyrir mér!
Well, best að halda áfram eigi maður að komast í partý annað kvöld
Glottandi
Bæjó
G

Gelgjuţrymlar

24. september 2008 klukkan 00:01

Nú er komi
ð að því!  Haldið þið að mín sé ekki bara að fara að hætta að reykja...  Hef ákveðið að vera ekkert að fela þessa tilraun mína og hafa þetta allt uppi á borðinu Svalur
Nú er ég búin að útskýra mig fyrirfram og það verður því ykkur að kenna ef ég slít af ykkur hausinn í einhverju geðvonskukastinu Öskrandi
Í október í fyrra bjallaði ég í lækninn og varð mér úti um lyfseðil fyrir reykingapillum, ég leysti hann svo út þann 4. janúar síðastliðinn og gleypti fyrstu töfluna í dag!  
Munið:  Góðir hlutir gerast hægt!!!
Áður en ég lét vaða og gleypti fyrstu pilluna renndi ég að sjálfsögðu lauslega yfir fylgiseðilinn, þá sérstaklega aukaverkanirnar.  Þar var ýmislegt fróðlegt að finna, var aukaverkununum skipt upp í þrjá flokka eftir því hversu algengar þær voru.  Í flokk tvö var t.d. aukin matarlyst (yfir 1/100) en þyngdaraukning var í þriðja flokknum (yfir 1/1000)!!!   Flottasta aukaverkunin er þó án efa gelgjuþrymlar, hún var reyndar í sjaldgæfasta flokknum og því ekki nema ca 1/1000 að ég finni fyrir þeim.  Gæti orðið áhugavert að veikjast af gelgjuþrymlum en samt er ég ekki viss, gæti verið einhver árans óþverri...  hef ekki hugmynd um það.

Getur einhver sagt mér hvað gelgjuþrymlar eru?

...halló! heyrir einhver??

18. september 2008 klukkan 00:06
Búin að vera að blogrúntast eitthvað, slysaðist svo hingað inn og sá að ég hef hent inn heilum ÞREMUR pistlum á þessu ári!!  ji minn...  var bara tvennt í stöðunni, annað hvort að skella inn nokkrum línum eða loka síðunni...
Ákvað sem sagt að reyna að athuga hvort ég endist eitthvað í þetta skiptið.  Fannst einnig tilvalið að deila með ykkur mynd sem mér áskotnaðist um daginn, var hún tekin þegar við vorum að fara í skólaferðalag að Reykjum í Hrútafirði haustið ´89.  Við vorum sem sagt 12 ára og ekkert smá FULLORÐIN!
Fyrir þá sem ekki þekkja þá er þetta ÉG sem sit á milli þeirra Garðars og Kidda  hehehe...  ekkert smá mikil beibís Saklaus
Jæja, ef einhver slysast enn hingað inn þá væri mjög gaman að fá feedback um það hvort ég ætti að gefa bara skít í þetta og loka síðunni eða girða í brók, spýta í lófana og blogga sem vindurinn...
bless á meðan
Gígjan

Ég sem varđ svo kát...

02. maí 2008 klukkan 13:47
...þegar ég opnaði blessaðan launaseðilinn minn áðan, bara böns of money...  Víhí!  Við nánari skoðun sá ég svo hvað málið var, ég hafði fengið allt of mikið, átti ekki að fá nein mánaðarlaun fyrir apríl, bara yfirvinnu og vaktaálag, enda hafði ég ekkert verið að vinna.  Skrambinn!  Þá fór af stað mikil togstreita á milli púkans og engilsins á öxlunum mínum.  Að vanda þá vann engillinn og ég hringdi í yfirmanninn, lét vita og óskaði eftir því að þetta yrði lagfært hið snarasta.  Reyndar var ég ekki sátt við þessa tilkynningu mína en vitandi það að ríkið tekur alltaf aftur það sem það hefur ofgreitt og þá gjarnan á versta tíma þá fannst mér sem hér ætti það við að illu sé best af lokið!  Spurði reyndar bossinn hvort það gæti verið að ég væri svo verðmætur starfskraftur að honum fyndist ég eiga skilinn smá bónus  (maður má nú alltaf vona) en hann fór bara að hlæja!!  hnuss...
Undanfarna daga hef ég ekki verið að gera neitt og það hefur sjaldan verið meira að gera hjá mér en akkúrat þá daga!  Fullt af heimsóknum, reddingum, rauðvíni og ostum  mmm....  Hafði hugsað mér að gera ekki neitt í einhvern tíma í viðbót en bossinn fékk mig til að koma inn til vinnu í næstu viku, eitthvað mannahallæri á svæðinu.
Skulum ekki hafa þetta lengra í bili
Hafið það gott þarna úti
Kv. Gígjan

Ţađ hlaut ađ koma ađ ţví!

05. febrúar 2008 klukkan 16:29

Þetta blessaða ár byrjaði svo illa að ég hef ekki verið í neinu skapi til að deila því með ykkur lesendur góðir. Hefði helst viljað spóla bara til baka og byrja það upp á nýtt, alveg frá stóru bombunum á miðnætti á gamlárskvöld!
Það var svo í nótt sem fyrsta „góða“ fréttin sem að mér snýr náði athygli minni. Þar sem það átti sér stað í byrjun febrúar þá hef ég ákveðið að þessi vondi tími dæmist bara á janúar, að restin af árinu hljóti að verða bara mögnuð, reyna að taka upp smá jákvæðni því ekki veitir af!

„Hvað er eiginlega að henni“ hljóta einhverjir að vera að spyrja sig akkúrat núna. Well, nenni ekki að fjalla ítarlega um þennan leiðindamánuð sem nú er liðinn en hér koma helstu punktarnir:
• Áramótin voru þau leiðinlegustu sem ég hef upplifað! Var reyndar mjög fínt um kvöldið en eftir miðnættið varð allt fúlt...
• Féll í FOKKINGS Almennunni – AFTUR!!! grrrr..... TUSSU FOKK! Hélt actually að ég hefði náð núna ! ÖskrandiÖskrandiÖskrandi
• Varð til þess að:
– Ég fékk ekki að halda áfram í Eignaréttinum þar sem hann tilheyrir öðru ári.
– Var byrjuð í Eignaréttinum og fannst gaman.
– Er því bara í heimspekinni, heilar 2,5 einingar!
– Engin námslán fyrir haustönnina (allavega ekki enn) og ótrúlega lítill skóli á vorönn.
– Er farin að vinna...jayjj... prófaði þó að fara í Kópavoginn núna, fleiri næturvaktir þar en í Hegnó og
betri aðstaða til að læra. Eeeen samt, komin í fangavörsluna AFTUR...! Djöfullinn
– Þar sem ég kláraði ekki „Almennuna“ þá náði ég ekki lágmarkseiningafjöldanum til að búa á
Stúdentagörðunum, flutningar því allt eins líklegir.
• Það var keyrt á bílinn minn og stungið af! Skíthælar sem gera svoleiðis!
• Varð ógeðslega veik í síðustu viku og hnerraði á afgreiðslugelluna í Apótekinu! Þó „slummulaus“ hnerri (sem betur fer)
• Snýtti mér svo mikið þann tíma sem ég lá í bælinu að ég fékk sár í nefið, blæddi úr því og allt!

Þetta eru svona „high-lightin“ sem ég man eftir í fljótu bragði. Kæmi eflaust mun meira ef ég gæfi mér meiri tíma til að rifja upp þennan leiðindatíma!

En góðu fréttirnar sem ég minntist á hér í upphafi bárust mér með rafpósti sem ég sá í nótt: Ég fékk undanþágu frá einingafjöldanum og þarf ekki að flytja í febrúar!!! Var farin að hafa stórar áhyggjur af því!

Gígjan kveður í bili, enn í fýlu en þó örlítið kátari enda búin að læra að gera íslenskar gæsalappir með eplakassanum sínum!!!
„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„“„

...ekki eins og ég sé eitthvað pirruð núna en fj...... bloggar.is neitar að koma með þennan pistil í þeirri uppsetningu sem ég vil!!   
grrrrr......

Nú áriđ er liđiđ ... og allur sá pakki!

31. desember 2007 klukkan 15:14
Af því tilefni vildi ég bara segja:

Vííííí

og góða ferð yfir mótin góðu er kennd eru við ár
Koss

Alltaf gott ađ kíkja norđur um jólin

25. desember 2007 klukkan 12:29

Alltaf gott að koma



GLEÐILEG JÓL

Er of afslöppuð núna til að geta látið mér detta eitthvað í hug til að skella hingað inn. Færsla bíður því betri tíma, enda nóg að gera við að fara á milli jólaboða, hitta skemmtilegt fólk, borða, lesa, narta í afganga, slaka á og maula á konfekti og laufabrauði...
Ullandi

Sem sagt, þá er maður bara of upptekinn við að hafa það ljúft til að gera nokkuð!!!

Hafið það öll sem best
Gígjan segir enn og aftur
Gleðileg jól

kl.4:26 í nótt...

17. desember 2007 klukkan 20:57
...er ár liðið frá einu eftirminnilegasta kastinu sem ég tók er ég bjó á Ásvallagötunni. Þetta kast er mér enn í fersku minni og gerir mig enn frekar pirraða! Af tilefni ársafmælisins hef ég ákveðið að gera svona copy - paste frá pistli þeim er ég ritaði eftir atvikið er reitti mig svona illilega til reiði!
- nýti mér þó heimild, sem textahöfundur, til lagfæringar á uppsetningu og innsláttarvillum sem slæddust með er ég hamraði lyklaborðið þann 18. desember í fyrra!

Já kæra lesönd nú er ég búin að fá nóg! Eins og sagði í Stellu: nu bliver jeg arrig!
Get svo svarið það að ég missti góðuna og er hætt að vera kurteis við þennan andskotans geðsjúkling, þá kannski fer hann að láta mig í friði!!!
NÁGRANNI MINN ER AÐ GERA MIG GEÐVEIKA!!!
Þó ekki þessi með rassahárin sem hræddi mig í sept. Ekki er það heldur sá sem gerði dyraatið hjá mér í byrjun nóv, sá var með ljósara hár og gleraugu....
Þessi sem er að gera út af við mig núna er gaurinn sem býr við hliðina á mér
Eydís vinkona var reyndar búin að vara mig við honum. Hélt reyndar að ég myndi sleppa ef ég léti hann í friði, en nei það dugði þó ekki.
Eins og allir sem búið hafa í fjölbýlishúsi vita þá heyrast sumir hlutir alltaf á milli íbúða, t.d. þegar verið er að láta renna í bað, sturtað niður o.s.frv. Baðherbergið hjá nágrannanum sem um ræðir er við hliðina á herberginu mínu og baðkarið sennilega við hinummegin við vegginn sem aðskilur íbúðirnar. Þar af leiðandi heyri ég alltaf þegar hann fer í bað. Það angrar mig svo sem ekkert, en það er nokkuð algengt að hann runki sér í baðinu!!! Með þvílíkum buslugangi að það hálfa væri alltof mikið!
Sérstaklega finnst mér þetta ógeðslegt þegar hann fer seint í bað og ég sjálf við það að sofna þarna hinu megin við vegginn... Skömmustulegur Gráta
Hann er líka alltaf að banka upp á hjá mér, dæmi af erindum hans þegar hann bankar uppá:
- Hæ, ég er alveg í vandræðum, geturðu nokkuð lánað mér 150 kall? ég fæ útborgað á morgun!
- Ok, lét hann fá 150 kall en hver fær útborgað 7. dag mánaðar!
- Hæ, ég er að fara til læknis, áttu nokkuð 1.000 kall?
- NEI
- Hæ, ég er alveg að fríka út, áttu sígó handa mér?
- Nei, á bara eina og tími henni ekki
- Hæ, áttu nokkuð fjórar brauðsneiðar, ég er alveg að drepast úr hungri - Þar sem það var brjálað veður þá gaf ég honum fjórar brauðsneiðar!
- Hæ, ég er alveg blankur áttu nokkuð 300kall?
- NEI
.......svona mætti lengi telja. Í gær átti hann þó met:
- Hæ, eigum við að fara að setja upp jólaseríuna?
- Nei, veistu að ég bara má ekkert vera að því, er á fullu við að læra!
Klukkan 0:09 bankaði hann aftur, var á tásunum og náttslopp:
- Hæ, viltu ekki koma í kaffi?
- Ha?
- Ég vil endilega bjóða þér í kaffi, viltu ekki kíkja yfir?
- NEI TAKK, ég er að læra en takk samt. Ég var alveg að kafna úr hlátri og rasandi hissa.
Svo kl.4:20 í nótt hrökk ég upp, fannst ég hafa heyrt í dyrabjöllunni en var ekki viss og eftir að hafa litið á klukkuna ákvað ég að vera ekkert að kanna málið. Þegar ég var alveg að sofna hringdi bjallan aftur (4:26) það fauk í mig...! Ég hentist í föt og svipti upp hurðinni með koddafarið á kinninni, úfið hár, í öfugum bol, með sokk hangandi niður úr buxnaskálminni og blásvört í framan af bræði
jújú þarna stóð félaginn eins og stundum áður:
- HVAÐ? (þrumaði ég)
- eeeööö.... ég bara....ööö...
- VEISTU HVAÐ KLUKKAN ER??? (rómurinn fór stighækkandi)
- Öööö, ég vildi nú ekki trufla en...
- EKKI TRUFLA??? KLUKKAN ER 4:26!!!
- Æji já, fyrirgefðu, ég ætlaði ekki að vekja þig
- ÆTAÐIR EKKI AÐ VEKJA MIG??? ÞÁ HRINGIR ÞÚ EKKI BJÖLLUNNI KL.4:26!!!
- ööööö....
- HVAÐ VILTU???
- öööeeeöööö.........ekkert
- ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ, ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA EITTHVAÐ MIKILVÆGT FYRST ÞÚ KEMUR HINGAÐ UM MIÐJA NÓTT!!!
- ööö nei fyrirgefðu þetta skiptir ekki máli
- HVAÐ VILTU EIGINLEGA (var farin að garga skrambi hátt)
- ööööööeeeeee ekkert... og hvarf inn til sín
- HEIGULL!! (orgaði ég og skellti hurðinni svo fast að nú opnast hún nánast út)

Ég var svo reið að ég átti ekki til orð, var enn vakandi um klukkutíma síðar og gaurinn við hliðina sennilega með belaðan hiksta! (vona það allavega)

Þeir sem þekkja mig vel vita að það er ekki með öllu hættulaust að vekja Gígjuna af værum blundi....

Gríđarlega hressandi tíđ!

14. desember 2007 klukkan 14:04

Mikið er þetta allt ánægjulegur tími!  Úti er ekki rigning, bara hressandi andvari.  Sökum andvarans er ekki hægt að hafa gluggana opna, þá fer allt úr skorðum.  Það er samt allt í lagi, súrefni er ofmetið.  Örlítil vandræði þó þegar ég tók “morgunsturtuna” gat ekki loftað út og var leeengi að þurrka mér, en það er allt í lagi, er bara enn hreinni fyrir vikið!
Sjálf er ég undrandi á því hversu dugleg ég hef verið að safna síðustu vikurnar, komin með góðan haug af vöðvabólgu!  Sjaldan náð svona mikilli á sama stað.  Taktfast “bít” í höfðinu á mér þegar líður á daginn, en takturinn er bara góður, mjög jafn!
Lund mín sveiflast örlítið, eru sveiflurnar orðnar töluverðar.  Það er þó í góðu lagi enda jafnaðargeð leiðinlegt til lengdar!
Geggjað hressandi allt saman!
    
Vildi bara láta vita að ég er á lífi og við góða heilsu, sjaldan betri bara
Glottandi
Kv. Gígjan

Innskráningar kubbur